Um okkur
Qair er íslenskt orkufyrirtæki sem sérhæfir sig í endurnýjanlegri orkuframleiðslu og þróun.
Félagið var stofnað árið 2018 í þeim tilgangi að þróa vindorkuverkefni hér á landi. Árið 2019 fjárfesti fyrirtækið í Arctic Hydro sem rekur 12 vatnsaflsvirkjanir og er með fjölda annarra vatnsaflskosta í þróun. Árið 2023 endurreisti félagið tvær vindmyllur við Þykkvabæ í gegnum félagið Háblæ ehf. sem einnig er í eigu Eignabjargs ehf. dótturfélag Arion Banka.
Félagið vill leggja sitt af mörkum og vera virkur þátttakandi í þeim háleitu markmiðum íslenskra stjórnvalda að verða fremst þjóða er varðar kolefnishlutleysi landsins. Tryggja fjölbreytta flóru orkuframboðs, fagmennsku við þróun og rekstur orkukosta og stuðla að samkeppni á íslenskum orkumarkaði, öllum hagaðilum til framdráttar. Í þeirri viðleitni þróar nú félagið um 800 MW uppsett afls vindorkukosta ásamt um 200 MW vatnsaflskosta.
Qair er partur af Qair Group samsteypunni.

Gildin okkar
Sanngirni
Við trúum á sanngjörn og heiðarleg viðskipti. Við hugum að samfélögum og vinnum með heimamönnum og öðrum hagsmunaaðilum. Við erum gegnsæ í okkar viðskiptum. Við leggjum okkur fram um að styrkja teymið okkar svo það geti deilt færni og miðlað innri þekkingu. Við pössum alltaf upp á að halda frumkvöðlaandanum lifandi.
Samvinna
Hjá Qair deilum við þekkingu okkar, innsæi og reynslu með þeim sem við vinnum með. Við hlustum hvert á annað og lærum bæði af samstarfsaðilum okkar og viðskiptavinum. Við leggjum okkur fram um að skapa nýjungar sem nýtast öllum. Því við vinnum öll betur saman þegar við sameinum styrkleika okkar.
Umhyggja
Sýn okkar er að flýta orkuskiptunum og gera endurnýjanlega orku að sjálfsögðum hlut. Þess vegna setjum við alltaf langtímaávinning framar skammtímahagnaði.
Starfsfólk

Friðjón Þórðarson
Framkvæmdastjóri

Ásgeir Margeirsson
Stjórnarformaður

Jón Páll Jónsson
Fjármálastjóri

Arnór Tumi Jóhannsson
Verkefnastjóri

Francisco Javier Ari Quintana
Verkefnastjóri

Anna-Bryndís Zingsheim Rúnudóttir
Verkefnastjóri
Tengd félög

Qair International
Qair International er sjálfstætt orkufyrirtæki með höfuðstöðvar í París, Frakklandi. Fyrirtækið þróar, fjármagnar, byggir og rekur endurnýjanleg orkuverkefni um allan heim — þar á meðal vindorku, sólarorku (PV), vatnsaflsvirkjanir, sjávarorku, grænt vetni og orkugeymslu.

Arctic Hydro
Arctic Hydro er sjálfstætt orkufyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun virkjanakosta á Íslandi fyrir raforkuframleiðslu og starfar félagið einungis á sviði endurnýjanlegra orkugjafa í því sambandi. Félagið vinnur aðallega í kringum möguleg tækifæri á sviði vatnsaflsvirkjana.