Hreint íslenskt
náttúruafl
Qair er sjálfstætt orkufyrirtæki í endurnýjanlegum orkugjöfum á Íslandi
Verkefni
Á kortinu hér fyrir neðan er hægt að sjá gangsettar virkjanir sem og verkefni í þróun. Smelltu á punkt fyrir nánari upplýsingar.

Grímsstaðir
Í þróun
31 túrbína í Meðallandi í Skaftárhreppi. Áætlað afl hverrar túrbínu er 7,2 MW og heildar uppsett afl um 223 MW.
Nánar um virkjun

Hnotasteinn
Í þróun
30 túrbínur á Hólaheiði í Núpasveit í Norðurþingi. Áætlað afl hverrar túrbínu er 7,2 MW og heildar uppsett afl um 216 MW.
Nánar um virkjun

Eyvindarstaðir
Í þróun
2 túrbínur austan Blöndudals í Húnabyggð. Áætlað afl hverrar túrbínu er 4,5 MW og heildar uppsett afl um 10 MW.
Nánar um virkjun

Fellshólavirkjun
Í þróun
19 túrbínur ofan Svartárdals í Húnabyggð. Áætlað afl hverrar túrbínu er 7,2 MW og heildar uppsett afl um 137 MW.
Nánar um virkjun

Múli
Í þróun
15 túrbínur á Hvammsmúla í Borgarbyggð. Áætlað afl hverrar túrbínu er 7,2 MW og heildar uppsett afl um 108 MW.
Nánar um virkjun

Háblær
Gangsett
Tvær 0,9 MW E44 túrbínur í Þykkvabæ í Rangárþingi ytra. Heildar uppsett afl nemur 1,8 MW.
Nánar um virkjun

Sólheimar
Í þróun
29 túrbínur á landi Sólheima í Laxárdal í Dalabyggð. Áætlað afl hverrar túrbínu er 7,2 MW og heildar uppsett afl um 209 MW.
Nánar um virkjun

Um okkur
Qair er íslenskt orkufyrirtæki sem sérhæfir sig í endurnýjanlegri orkuframleiðslu og þróun.
Félagið var stofnað árið 2018 í þeim tilgangi að þróa vindorkuverkefni hér á landi. Árið 2019 fjárfesti fyrirtækið í Arctic Hydro sem rekur 12 vatnsaflsvirkjanir og er með fjölda annarra vatnsaflskosta í þróun. Árið 2023 endurreisti félagið tvær vindmyllur við Þykkvabæ í gegnum félagið Háblæ ehf. sem einnig er í eigu Eignabjargs ehf. dótturfélag Arion Banka.